PrevengHo-vir – ónæmis-efling

Heilbrigðisyfirvöld á Kúbu notuðu þessa hómópatísku dropa PrevengHo-vir sem verndarráðstöfun sérstaklega fyrir aldraða gegn öndunarfærasjúkdómnum COVID-19 alveg frá byrjun árs 2020. Dropar þessir voru upphaflega þekktir fyrir að efla ónæmiskerfið og koma þannig í veg fyrir mismunandi sjúkdóma eins og inflúensu, flensusjúkdóma, dengues og allskyns veirusýkingar nýjar og gamlar. Það var þess vegna sem Kúbverjar völdu að nota þá fyrirbyggjandi þegar Covid-19 faraldurinn reið yfir. Orðið Preveng þýðir að fyrirbyggja. Droparnir eru samsettir af remedíunum Baptisia, Arsenicum Album, Bryonia, Influenzinum, Anas Barb og í styrkleika 200c. Heimilislæknar ávísuðu þessu í bak og fyrir og nokkuð nýlega var gerð könnun á afleiðingum faraldursins á Kúbu annarsvegar og Bandaríkjunum hinsvegar og talið að ástandið væri 12 sinnum verra í því síðarnefnda. (JÁ þýddi og staðfærði).
https://startupcuba.tv/2020/07/08/prevengho/

Færðu inn athugasemd