
Nýja árið gefur okkur öllum töluna sex. Talan tveir kemur þrisvar sinnum fyrir og stendur fyrir samvinnu, málamiðlun, trú og trausti. Treystum því að innri vitneskja leiði til réttra ákvarðana. Ef við lærum að opna á innri kraft okkar verðum við undrandi á því hversu einfalt lífið getur orðið. Til þess að geta gengið í burtu frá myrkrinu þurfum við að sjá ljósið í öllu. Talan sex stendur fyrir fjölskyldunni, sameiningunni, kærleikanum. Til þess að reikna út þitt persónulega ár hinsvegar, þá leggurðu saman fæðingardag þinn og ár við töluna sex. Þá færðu töluna sem gefur þitt persónulega ár og hvaða áskoranir þú tekst á hendur það árið. Sagt er að áhrif þessa byrji um áramót og nái hámarki á afmælisdegi okkar.