Höfundar velta í þessari bók upp hugsanlegum, mögulegum orsökum þess að við glímum við króníska sjúkdóma þrátt fyrir viðeigandi meðferð við þeim. Þeir kanna umhverfisþætti eins og rafsegulstreitu, jarðfræðilega streitu, efnaeitur og margt fleira og gefa hagnýtar lausnir til að takast á við þá. Rúmur áratugur er nú liðinn frá útgáfu bókarinnar og margt bæst við flóruna sem hefur ekki farið framhjá okkur í LA VITA – og við munum fræða skjólstæðinga okkar um sem best við getum. Við þurfum að lifa með þessu öllu saman, spurningin er bara hvernig við getum best varið okkur, gagngert til þess að halda HEILSU og LÍFS-gæðum.
